Grenz

fyllirí ,fótbolti, ræktin og pizzur, það er lífið:)

09.11.2010 22:43:41 / davidleo

Frábær síða!!!

Maður datt inn á þetta og skoðaði svoldið.
væri gaman að endurvekja siðuna.
Kveða X dp master Hall


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.07.2008 04:09:08 / heidar

Landsmót á Hellu

Landsmót hestamanna 2008 +

Heil og sæl öllsömul. Síðasta færsla er rituð 9. mars sl. 
Aldrei nokkurn tíma hefur liðið svo langur tími milli færslna síðan Davíð Leó stofnaði þetta egócentríska afdrep sitt þann 3. janúar 2006;)
Kannski tími kominn á að sýna smá viðleitni fyrir heittrúað GRENZ fólk.


Við skulum byrja á Miðvanginum. Framkvæmdagleðin var óvenju á mikil á vormánuðum þetta árið.



Þegar rífa á niður hurðagat og millivegg... á aaalllltaaaaff að fá FAGLÆRÐAN smið í verkið!


Haamarr oog spoorjárn er merki mitt, merki innrééétttinngasmiiiðaaa...


Jæja út með karminn og helvítis hurðina. Á Grundarstíg skal haldið þar sem Dóri mun setja upp þessu raritat hurð með hafnfirska sál í timburhjalli í 101


Grundarstígur 5. Linda var búin að væla um að fá hurð í herbergið sitt í 2 ár. Ég og Dóri komum með hurð+karm alla leið frá Hfj og upp á 2. hæð á Grundarstíg


En nei, hurðin stóðst ekki gæðakröfur. Kom þá upp sú hugmynd að flytja hurð frá öðrum stað í húsinu. Þannig að nú þurfti hinn sveitti faglærði smiður að gjöra svo vel að máltaka fyrir nýjum "karmi".
Linda fékk semsagt loksins hurð í herbergið sitt eftir að hafa búið í "mátunarklefa" alla sína tíð á Grundarstíg


Já, svona eru þessir smiðir. Þeir skilja eftir sig svöðusár í hlöðnum veggjum og gólfefnum;)



Helgi Dagur málarameistari var fenginn í að sparsla herlegheitin


Og þarna er hann búinn að gluða á veggina

Áður en við vindum okkur á Landsmótið þá verð ég að sýna ykkur smá glefsur úr partýi hjá Hirti F. Ég fór á "Náttúru" tónleikana í Laugardalnum um daginn og hitti þar fyrir einskæra tilviljun Hjört Frey Garðarsson fyrrum DP mann (aka. "Hjörtur vespustrákur í gegnum rúðu"). Hann býður í partý og að sjálfsögðu mætum ég og dóri...



Eftir tónleikanna brunum við upp í Breiðholt, áttum okkur þá á því að okkur bráðvantar rafhlöður í myndavélina til að skjalfesta væntanlegan kúk. Og viti menn, lendum þá í þeirri bráðskemmtilegu uppákomu að vera spottaðir af Axeli Rækjusalati á Select í Suðurfelli að taka bensín með pabba sínum. Axel og pabbi hans voru á leið til Keflavíkur. En Axel var þá á að fara að fljúga út á Hróarskeldu að hitta Bingo...


Og já, þarna leggja þeir feðgar í hann... með 'NB' bensínlokið hangandi (vinstra megin)... 
Já, fínir feðgar hér á ferð. Þeir detta allavega ekki úr "karakter"...




Pókerkvöld hjá Hirti. Dóri lét reyna vel á byrjendaheppnina sem entist þó nokkuð lengi


Þönnar Dörri Sögörðsson mætti eins og kúkur á færibandi fyrir mig og Dóra.
Og Dóri SwissMiss, hvernig væri nú að fara að slaka aðeins á í ljósabekkjunum...


Jæja, er það ekki BYENS!?!?!!! NÚNA!


"Bíddu aðeins Dóri, ég ætla skoða hvað er gerast í kvöld"


KÁSGEIR! Kvöldið er fullkomnað. Góður endir á góðu kvöldi;)


Sagði einhver "landsmót" ?


Þórhallur kjúklingabóndi, Arnar Sigtryggs, og Dóri.
Dóri, af hverju fær Arnar ekkert að drekka. Er hann kannski á "snúrunni" fram að Eyjum ?





Dóri fór aftur til fortíðar, nánar tiltekið til ársins 1998. Já Dóri, þeir voru einmitt að hringja áðan, þeir vilja fá þú veist hvað aftur :Þ


Flóki Sigtryggs tapaði amk tveimur skákum gegn "baunaranum" (Thomas frá DK)


Já þetta eru nú meiri helvítis naglarnir þessir Danir. Ég veit ekki hvort þið áttið ykkur á kaldhæðninni en ég hef bara aldrei séð nokkurn mann drekka Lite  með svona hrikalegri grimmd :lol:


Já já, gefðu honum bara nóg að drekka þá mun hann tölta með þig hvert á land sem er...


Dóri og Guðni Ágústsson hafa verið miklir mátar alla tíð síðan þeir voru saman í húsmæðraskólanum 2006



Ahhhhh, 8,5%, það ROKKAR! Enda Riesling þrúga, eina þrúgan sem bragð er að


Hinn goðsagnakenndi Jens Finnsson að draga skelþunnan Dóra út er bílnum sínum er hann reyndi að keyra heim til mömmu sinnar í von um magnyl og víking við vægum höfuðverk :haha:


"Dúlluspaðinn" Arnar Sigtryggs kominn í gírinn og litli bróðir reynir eftir fremstu getu að leiðrétta allan misskilning

 

Þeir hlutu heiðursnafnbótina "Dúlluspaðar Landsmóts hestamanna 08"



Sunnudagurinn 6. júlí og landsmót að líða undir lok.


Já, þannig var nú það.
Úrslit mótsins voru tilkynnt seinni part dags. Ég hef nú reyndar ekki hugmynd um hvernig þau voru.
En það er nokkuð ljóst að hestamenn kunna að skemmta sér og landsmót á næsta ári kemur vel til greina.

Kv. Heiðar



» 1 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 22:57:42 / heidar

Lebowskifest 2008

Lebowskifest 2008

Komið þið sæl og blessuð! Einhver ykkar ættu nú að kannast við mig. En fyrir þá sem ekki þekkja mig þá heiti ég Helgi Dagur og ég er málari.

Árið 1998 kom fram á sjónarsviðið mikið meistarastykki í kvikmyndaheiminum. Ég er að tala um hið stórmerka framlag Coen bræðra, The Big Lebowski.
Hátíðir í tengslum við myndina hafa verið haldnar í Bandaríkjunum síðastliðin 7-8 ár.
Í ár er 10 ára afmæli myndarinnar. Í ljósi þessa létu nokkrir framtakssamir menn verða af því að halda þessa hátíð hér á landi.


Árla kvölds og keiluleikur kominn af stað. Verandi upptekinn af keiluspili þá var það þrautinni þyngra fyrir Heiðar að komast á barinn. Rann þá upp fyrir honum sú svakalega staðreynd að keiluhæfileikum hans hrakaði allsvakalega eftir því sem rann meira af honum... :o


Ponsi og CO mættu sem Nagelbatt grúppan ef ég man þetta rétt?


Ponsi sýndi á sér nýja hlið í gær. Hvern hefði grunað að Ponsi væri svartari að innan heldur dóri. Maður hendir ekki manni úr hjólastól og hlær svo að honum 8| :lol:


Já, svo mættu svona týpur. Sem er gott enda eru Heiðar og hlöðver áhugamenn um áhugamenn ef það hljómar á einhvern hátt rökrétt :$


Heiðar var illa tekinn þarna. Bölvaðir þrjótarnir náðu mynd af honum út í skógi að skíta :!:


Já þetta er hann Heiðar klæddur sem páfinn að lesa blaðið og skíta :o


Veitt voru verðlaun fyrir besta búninginn þetta kvöld. Og mættu nokkrir sem persónur úr myndinni. Heiðar hlaut þann vafasama heiður að vera veitt verðlaunin: "Hann var of latur til að mæta í búning en tók sig vel út í (S) bolnum"
Uppskar hann vegna þessa, 1 lite "bjór", lyklakippu og glasamottu :^)


Þrír af aðstandendum hátíðarinnar frá vinstri talið. Svavar var klæddur sem Saddam en menn þurfa að vera ansi áhugasamir um myndina til að átta sig á því til hvers hann er að skírskota.


Þarna sjáum við Heiðar og þennan vinalega náunga sem sá þeim öllum fyrir Prezident allt kvöldið.
Flóki Flók tók það að sér að sækja hálfvitana í Keiluhöllina


"Já flott hjá þér Helgi Dagur!"
Þetta er hann Michiel "Metzelaar"..?
Heiðar og Hlöðver tóku þennan ólánsama hollending upp í á Hverfisgötunni og skutluðu honum á farfuglaheimilið í Laugardalnum


Það væri nú ansi snubbótt ef ég myndi enda þetta hérna. Þess vegna finn ég mig knúinn til þess að grafa upp það sem ég kýs að kalla: "gullmola fortíðarinnar"

Já Davíð ég kom nú við á Suðurgötunni í dag til að hjálpa þér að gluða málningu á þessa veggi og sækja LÁRUS myndirnar frá ævintýrum EiturlyfjaGarðars en nei, enginn sjáanlegur :$


Tómas Hansson, þarf ég að segja meira? Spurðu hann frekar, hann veit ALLT :!:


Svona byrjuðu Vangs-íhrunin. Tveir, frekar digrir, loðnir og frekar latir náungar að súpa á áfengum veigum í kaupfélagsblokkinni í Hfj :haha:


Hæ hæ, HFG hérna. AKA, Hjörtur Feitabolla, AKA Hjörtur HEITA bolla :lol:



Ef það var eitthvað í þessari blog færslu sem ykkur mislíkaði, þá mæli ég með því að þið hafið samband við annan hvorn þessara spjátrunga :!:

Kv. Helgi Dagur - málarameistari




» 4 hafa sagt sína skoðun

17.02.2008 20:54:54 / heidar

Austurbrún X

Austurbrún X

Hey, BJ hér. Ég biðst forláts. Það er bara búið að vera brjálað að gera hjá mér. En nú bara get ég ekki skorast undan merkjum lengur samvisku minnar vegna.
Ég fór í lappann og gróf upp einhvern samtíning til að sefa óróar sálir...



Já sæll !


Jensinn og Davíð! Jensinn mætti í Fensalina í þjóðhátíðarmúnderingunni um daginn. Davíð er edrú, enda orðinn FLÚÐASVEPPUR. Ekkert WC, ekkert tan. Elsku drengur hvað kom eiginlega fyrir?


Æ greyið strákurinn. Hann er búinn að rusla Almeruna sína. "Oft grætur hjarta undir glaðri kinn"


Skólabókardæmi. Elsku drengurinn er svo kvalinn á sálinni sökum ástands fröken Almeru DE-750 að tilfinninga-ringulreiðin sem hann er að upplifa drífur hann til þess að "kúka" yfir vísitölu fröken Almeru YA-068 hans Heiðars


Eyjar, enn og aftur. Einhver búinn að byrla blessuðum drengnum einhvers konar nauðgunarlyf í þeim tilgangi að ræna af honum hárinu 8|


"Ég heiti Hlöðver, og mér er bara alveg sama!"


Sólarparadísin í bakgarðinum hjá Guðrúnu og Gylfa


Menningarnótt 2007. Samkoma í húsi í Þingholtunum. Gestrisni húsbóndans var með eindæmum. Næring og áfengi stóðu öllum til boða í ótakmörkuðu magni

Jæja, óþarfi að kvelja ykkur lengur. Síðastliðinn sunnudag komu fíflin Heiðar og Flatrass á DP
Þeir höfðu nákvæmlega ekkert betra við sinn tíma að gera. Eftir ca hálftíma dvöl á DP poppar inn sending,,, Austurbrún X (guðrún). Án umhugsunar vippa þeir sér í DP jakka og skella á sig húfu...


Iðnaðarmenn á á leið í svaðilför 8|


3 cylindra STICK aygo. meikar hann þetta?



"JÁ DÓRI. Þetta er alveg FO SHIZZLE! Austurbrún X!"


Já, það er leiðinlegt að sjá þetta. Hann var ekki svona vitlaus þegar hann var að vinna hjá mér. Ég get ekki orða bundist, þetta er einfaldlega óðs manns æðí :$


Í lyftunni. Já, ég er ekki frá því að sé kominn smá skjálfti í menn á þessu augnabliki...


ÚFFFFF:!:


MISSION ACCOMPLISHED. Þeir ætluðu að biðja hana um fá að taka mynd af henni og Dóra,,, en þeir guggnuðu báðir á því... Af því að,,, hún var bara í nærbuxum og skyrtu... :|


Hæ hæ, Frissi hér. Ég ábyrgist það persónulega að EKKERT, ég endurtek EKKERT Season All var notað við gerð þessa BLOGS! Já ég veit alveg að ég er fínn gaur:lol:


Ég þakka gott hljóð. Þetta er allt og sumt sem ég hef fyrir ykkur í bili.
Hlöðver, over and out


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 22:39:41 / heidar

Eyjar 2007

Eyjar 2007
Ofdrykkja, brekkudauði og feitar skonsur.
Pizzuhallar-rafvirkinn Davíð fékk frí þessa helgina til að bæta 35% glussa á dælukerfið
Hinn fertugi Flatrass :$ fór ekki með tóman bakpokann til Eyja. Nei, heldur fór hann vel smurður þangað, enda tók hún Guðrún móðir hans ekki annað í mál...:lol:
Feiti naggrísinn var mættur í regngallann full tímanlega að mati sumra.
Ég sé tvo menn á þessari mynd sem ættu alls ekki að stíga upp í þessa rellu. Annars vegar hinn 100 kílóa glussatjakk og hins vegar þennan spikfeita naggrís 8|
Hinn 100 kílóa glusstjakkur var ekki hress með teipið á á hreyflinum á þessari ágætis rellu 8|
Stressaður grís leynir áhyggjum sínum yfir "teipuðu" rellunni með þessu brosi. En teipið hélt og allir komust tiltölulega óskaddaðir út í eyjarnar eftirsóttu...
Grís sýnir Glussatjakknum hvernig á að tjalda tveggja súlna kúlutjaldi. Glussatjakkur er hvumsa :S
Jæja, byrjum að djúsa. Davíð í góðum félagsskap með honum Bjarna félaga Arnars bróður
NEEEEEIIIIIIII!!!!!, EKKI MEIRI CAPTAIN..... :o
Það var alltaf drukkið ótemmilega fyrir utan höllina áður en fólkið hætti sér í dalinn

Og inn í höllinni...

 

Það er nokkuð ljóst að Glussatjakkur fílar það í rassgat að taka "STÓRT" upp í sig :klikk:

 

 

 

Feitir og fallegir :S
Litlu stelpurnar að jafna sig eftir átök gærkvöldsins
Feitur og feitari...
Davíð að borða og maðurinn sem hefur alltof mikið að fela
.
Eyjar að baki, nú þarf dóri að komast að. Hann var að kaupa sér Nissan Terrano og vildi endilega sýna ykkur hann
Terrano tekur sig vel út á hálendinu. Þetta er breytt kvikindi, 33", geri aðrir betur...
Rafstrumparnir í 220.000 volta Sultartangalínunni. Alltaf í stuði ;)
Jæja, biðst afsökunar á glötuðu bloggi.
Kv. Heiðar (sem fékk gjörsamlega enga hjálp frá Davíð)

» 5 hafa sagt sína skoðun

29.07.2007 16:34:47 / davidleo

Óbilandi ást á druslunni sinni!!! og nýjir tímar

Project Fondmetal.
fyrir langa löngu í landi lang langt í burtu gerðist mikill skítur en menn vissu bara ekki betur.
þannig byrjar sagan að bílaframleiðandi að nafni NISSAN ákveður að það sé bara ekki töff að vera með kopa WTF snillingar.
ætli menn hugsi ekki allt skára en koparanir NEI svo er ekki það er til skítur og mikið af honum.
jæja Nissan menn ákveða að hefja samstarf með felgu fyrirtæki að nafni fondmetal verandi þar sem þeir eru ódýrir með sæmilega útlítandi felgur og þá kemur hinn almenni vístölu bíll sem við köllum ALMERA facelift sunny á markað með standard fondara undir sér okey er hagi NEI 
það er það ekki.
Allir í blindni kaupa sér þennan viðbjóð flestir hafa vitið fyrir sér og versla nýtt undir vísitölu hræið aðrir hnupla felgunum undan bílnum hjá mæðrum sínum ó já heiðar skammastu þín.
en aðrir eru bara endalaust vitlausir og reyna að redda skítnum
HALLÓ REDDA SKÍTNUM ER HAGI
Neiiii maður reddar ekki fondmetal þú HENDIR ÞVÍ en davíð er það sem kallast tregur og úr því kom project fondmetal super white 
 
Eins og sést mjög greinilega þá eru þetta viðbjóðs felgur.
Og neiii ég sprautaði þær ekki svartar þetta er víst tjara frá því að vera aldrei þrifnar. Hey ég er enginn sóði mundir þú þrífa fondmetal felgurnar þínar? held ekki.
 
Þá er vístölu bíllinn minnlamaður í skúrnum hjá afa en ég þakka afnotinn af skúrnum hans til framleiðslu á super white felgunum mínum.
búin að þrífa tvær felgur ( enginn vinna að sprauta bara þrífa :whut:  )
miðjurnar komnar og fondmetal merkið púsað í burtu ójá viljandi..
önnur kominn og hinn grunnuð var að spá að hafa hana svona bara grunnaða kom ágætlega út....
Heil helgar vinna og draslið komið undir í þetta eydi ég um 9000kr en allt ruslið verlaði ég í N1 upp á höfða en það sem til þarf að skeina sér og draslinu sem er undir bílnum sínum þarf maður grunn 2 brúsa lit má vera hva sem er svart er gæti verið töff 3 brúsar og svo glæra bara 1 brúsi en ég þarf að skila einum keyfti 2 þetta kostar 9000 burt séð frá tímanum sem þetta tekur þannig farðu bara og fáðu þér nýjar felgur.
Fyrsti bíltúrinn á super white racing felgunum hahahaha.
Þar sem maður er svo amerískur í sér verður maður að vera með límiða í afturrúðunni hvað betra en ökudólgurinn...við elskum hann
AKUREYRI afmæli hjá garðari.
Næstu helgi var farið svo í roadtrip til garðars og söndru svo litla dagný sem er bara orðin svoldið stór.
myndirnar segja flest.
Ray ban karlinn á leiðinni til akureyrar.
 
Smá útidúr var tekinn á leiðinni ekki viss hvar þetta er en slenderinn var tekinn út til að stútta bjórnum.
Karlinn varð að skella á sig slenderan líka og auðvitað úr að ofan partý í sveitinni.
Afmælisbarnið hann garðar en þess má geta að garðar er 2 mánuðum yngri en ég.
ATH Afmælisbarnið er undir áhrifum áfengis á þessari mynd
Eldhús partý með öllu innifalið wife beaterinn tekinn fram og alles.. biðst samt afsökunar á lite-innum ef hann fer fyrir brjósti einnhvers..
 
Sandra að segja hversu hamingjusöm hún sé með að garðar skuli drekka karlmanns bjór en ekki hland.
Eldhúspartý Fm957
Úr Konuberjaranum í kalvin clein blúndu skyrtuna sýna :D
Ekki viss hva sé að ske á þessari mynd???
 
útkoman varð þessi HINN KARLINN...
.
Svo skellti karlinn sér á krossara og var vel varin með hlífðar fötum safety first.
Seinnast þegar ég fór á krossara þá datt ég og MEIDI mig þetta er í annað skipti sem ég fer og er að fá smá upprifjun en karlinn er góður og fljótur að læra prjónaði að meira segja 3 sinnum 8)
 
Jæja þetta líst mér ekkert á taka skal fram að þetta eru keppnis hjól 450cc slatti power og auðvitað vill hulda prufa líka og rétt náði með tærnar niður á jörðinna 8| smá stress í loftinni þetta augnablik.
En garðar fór og crúsaði hringinn með henni geta skal að HULDA prjónaði EKKI 8)
Góð Hlutföll Er hagi ;)
Mikil ást....
Endalaus ást :#
Eftir komu mína þarna til akureyrar þá voru menn svo ánægðir með karlinn að þeir reistu musteri handa mér og skýrðu í höfðuðið á mér. trúir þú ekki því hélt það. enda tók mynd til sönnunar. held samt að snorri hafi verið þarna því það var búin að spreyja á merkið :evil:
 Þá er það bara eyjar eftir nokkra daga crewið fer með bakka flugi á föstdaginn og með svell kaldan gylltan í hönd á samt elkó-innum og forsetanum allt sem maður þarf
kveðja Davíð Leó 

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 23:56:51 / heidar

Mánudags Lárus

Lárus Lárusson

 

Komið þið sæl. Lárus heiti ég Lárusson. "Hver er það?", gæti einhver spurt... Jú, ég tákna allt það góða sem hendir þetta indæla pakk á dp grenz...

Ég mun verða sögumaður ykkar í þessari ferð um hyldýpi áfengis og ævintýraþrár...

 

Einhvers staðar byrjar þetta allt saman. Afmælispartýið hennar Andreu var eitt af betri teitum ársins að mati okkar sálufélaganna...

 

Litla afmælisstelpan sem er ekki svo lítil lengur var mjög ánægð með kvöldið. Og já, hún Ólöf vinkona lét sig ekki vanta í gleðina;)

 

Já krakkar mínir, brundgrís sjálfur mætti í teitina. Öllum að óvörum eftir langa pásu frá súra dp pakkinu ;) Og já gústi minn, var að sjá þig á myndinni, verst að það sést í gegnum þig... ;)

 

Dóri heldur á fólki þegar hann er fullur. Það vita allir...

 

...og stundum missir hann fólk :klikk:

Já,  og ég mætti ásamt Lindu úr Sjálfstæðisflokknum ;)

Olsen: "Sko Bára, það eru bara 25 pepperoni á Classic, ekki 28, ekki 23 heldur 25!"

Músssjí músssjí músssjíí......

 

.

Æ æ , litli sæti Frissa Friss. Algjört krútt ;)

Munið þetta sem ég sagði um Flatrass, þetta með halda á fólki. Einmitt, gott ef hann er ekki bara á góðri leið með að missa þennan unga herramann

Þökkum Andreu fyrir flott partý.
Þá er förinni heitið í bæinn, en það átti ekki eftir að ganga áfallalaust fyrir sig. Við vorum svo ólánsöm að lenda á hörundsárasta leigubílstjóra fyrr og síðar

Við setjumst upp í bílinn... Dóri fer að virða fyrir sér bifreiðina og eftir smá pælingar segir hann: "Jesús!, er þetta GRÁR, Toyota Avensis STATION, sem er ekki með gat á þakinu... GÆTI þetta verið meira DULL!"

Bílstjórinn stöðvar bílinn hið snarasta á Sæbrautinni og segir: "Út með þig!"
 

Dóri: "Come on ég var nú bara að grínast, ég tala svona við alla"

Bílstjórinn: " mér alveg sama DRULLAÐU þér út!, ég hef nóg annað við minn tíma að gera en að sitja undir svona.

Og svo eftir nokkurt þref endar það með því að við neyðumst öll til að fara út úr bílnum...

Dóri hringir svo í annan leigubíl og útskýrir hvað gerðist fyrir símadömunni. Henni finnst þetta alveg bráðfyndið og skellihlær að þessu öllu saman

Dóri: "ertu til í að senda okkur annan bíl, bara í guðanna bænum ekki senda Avensis..."

Símadaman: "NEI, ég skal sko ekki senda Avensis... :lol:

 

Komumst í bæinn fyrir rest og Dóri heldur áfram að gera það sem hann gerir best :o

Jæja, næsti gjörðu svo vel :lol:

Komin þreyta í menn hérna, svo þreyttur var hann að hann gat ekki loftað feita naggrísnum... :haha:

 

Djammið þetta kvöld að líða undir lok og Dóri var búinn að safna orku í eina lokalyftu :lol:

Góða nótt
.
.

 

 

Og hvað, og hvað svo. Já, ég og Flatrass í Lárus, góðum Lárus reyndar. En já, öllum er sama... Hvaða feiti naggrís er þetta á húddinu....

 

Já, ég veit. Okkur vantar hobby

 

Já já, skulum kannsi redda okkur hobbýi. Verst að allir túristarnir í þessum dalli þarna lögðu upp að bryggju í sömu andrá og við mættum þarna og fylgdust með öllum kjánalegu "stuntunum" okkar. Það sést kannski ekki svo vel, en það eru allir úti á "dekki" að horfa. Já, samt gaman að fá athygli;)

.
.

Þetta eru litlu krúttlegu systurnar frá Svíþjóð, Linda og Tina, þær segjast kunna íslensku. Ég og Dóri erum ekki alveg vissir hvort það sé satt ;)

Hér er Linda að fá geisladisk í hendurnar með öllum myndunum sem voru á myndavélinni hennar eftir LYFTU djammið. Sagan er sem sagt þannig að Linda náði mynd af Dóra með töluvert eldri konu inn á kvennaklósettinu á Celtic. Dóri vildi ekki að þessi mynd sæi dagsljós og því rændi hann kortinu úr myndavélinni hennar í þeim tilgangi að eyða út kúknum, svo óheppilega vildi til fyrir greyið Dóra að ekki var hægt að eyða þessari mynd út af kortinu. 
Þannig að þessi mynd er til kallinn minn, bara tímaspursmál hvenær þetta fer á netið ;)

 

Hmm Gunnar í vanginum á leið í sturtu. Ætli það séu þá ekki svona 15 mínútur í áætlaða brottför í bæinn

Ég má til með að kynna Arnar bróður minn í þessu samhengi. Arnar hafði kjark í það að skutla mér, Lindu, Dóra og Gunna í bæinn, edrú og djamma með okkur,fínt kvöld :)

Kolefnisjöfnun er málið í dag... ;)

 

Litlu krúttin mín ;)

.
.
.

Og að lokum eitt stykki mánudags Lárus. Dóri í sumarfríi og ég að innleysa veikindadagana mína svona rétt áður en ég segi upp.

Seljalandsfoss

Dyrhólaey, Dóri vildi meina að Ómar Ragnarsson hefði flogið á rellunni sinni í gegnum þetta gat. Nei Dóri minn, það var Árni Johnsen...

Allt morandi í útlendingum þarna...

Úfffff, hæpur tæpur kallinn :o

Hafður að háði og spotti eftir að hafa gert misheppnaða tilraun til að klífa upp bakkann. Reyndar erfiðara en þetta lítur út fyrir að vera, en hey, hvað get ég gert, ég er bara feitur naggrís :haha:

Já þarna kemur svo Lárusinn, Flatrass kannar aðstæður

 

Eins og Gylfi, pabba hans Dóra segir alltaf: "Þegar keyrt er yfir á, á alltaf að fara út í með prik fyrst!" Í þessu tilfelli varð tommustokkurinn fyrir valinu enda ganga smiðir alltaf með svoleiðis á sér :)

Já já, why not :o

Kominn yfir, alveg helsáttur og hommalegur ;) Hér sannast hið fornkveðna: "KICKER getur ALLT!"

 

Kv. Heiðar hinn hárlausi

*edit

Afsakið, maður gerir ekki "i" án þess að setja punktinn yfir það. Það væri eins og búa til mann og setja ekkert hár á hausinn á honum...

Það muna allir eftir þessari mynd. En hvað eiga þessi mynd og myndin fyrir neðan sameiginlegt... :lol:

Ef þið nenntuð að lesa textann við myndirnar hérna fyrir ofan þá vitið þið um hvað þetta snýst ;)

Bíp! bíp! bíp!. Já Dóri minn hvað er þessi risastóra hendi á þér að gera á brjóstinu á þessari konu á "besta aldri" ?

 

Sorry kallinn minn, kúkur er eins og dauður gullfiskur. Hann mun á endanum alltaf leita upp á yfirborðið... :haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 04:22:41 / davidleo

23 ára AFMÆLI og flassbak

WWW.blog.central/davidleo 

Hérna byrjaði þetta allt saman jólin 2005 pensacola florida. Deilur hafa verið vegna nafnið sem DP síðan hefur og ónefndir aðilar haldið fram að þetta sé síðan mín og ekkert annað en þannig byrjaði síðan svo bættist bróðir heiðar í blogið og svo kom flóki og kári sem hvorugir stóðu undir væntingum.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar (svo maður hljómi klár) síðan þetta byrjaði en á msn sagði ég að ég ætlaði að játa svolítið upp á mig en fyrir þessa die hard dp blog fan þá ætti flestir að muna eftir raka eða ekki undir höndunum bloggið!!!

Gerð var skoðunar könnun þar sem ekki raka undir höndum vann naumlega Þar sem ég studdi það en heiðar raka eða snyrta. Eins og ég sagði þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og hér með viðurkenni ég það að ég fixaði kostninguna :) og hef ég bróðir heiðar séð ljósið og raka mig í dag (snyrti) og viðurkenni að ég hafði rangt fyrir mér.

En blogg eru bara leiðinleg ef það eru ekki krassandi myndir með þannug hér eru myndirnar úr 23ára afmælinu mínu og svo nokkrar sérvaldnar símamyndir.

\

Skemmtilega subbuleg mynd sérstaklega hvernig ég er algjörlega að fíla mig :klikk:

Held að Heiðari hafi ekkert lýst á Pókerið eða er þetta bara game face-ið mar spyr sig?

Sveppalegustu gaurarnir í RAFinu....

Frissi duglegur þetta kvöld og krummi með hinseginn daga í gangi.

Er bara ekki Partý nema DP stelpurnar koma ;)

Heitar gellur allar frá teknar nema ein??

veit ekki alveg hva er að gerast þarna held samt að ægir hafi mist sig og tekið robotinn og hulda já segir ekki neitt.

Klósett samræður :$ :haha:

Krummi bara alltaf í eitthverju gay myndum og haukur hvenar kom þetta háskóla look soldið rónalegt er að fíla það.

 

 Verður bara ekki sætara en þetta giftu sig með hringum :haha: ótrúlega sæt hulda :#

Nebbakoss :lol:

Þarna er maðurinn sem er þekktur í búlgaríu sem horítos 8) og sem vélmanna dansarinn meðal kvenna í FB þetta er dóri. ásamt THE friss og Rannveig.

Garðar æskufélagi að birtast hér í firsta skiptið á blogg DP. nennti ekki að snúa en við öll mælum með rakstri og klippingu :)

Pakkið enþá að dansa held að tómas nr7 hafi bæst í hópinn (takið eftir tatto á hálsinum splunku nýtt og frekar flippað við fílum flipp.

Ég skal segja ykkur hvað skilgreinir félagan frá kunningja....Félagin er alltaf tilbúin að þefa af puttunum þínum jafnvel vitandi hverkonar óþef hann á eftir að finna Garðar er sá félagi.

Póker þar sem Grísinn fer huldu höfði sem saklaus ung stelpa en var í raun og veru glæpamaður og hirti féið okkar :evil:

Andrea og bára komu sem fatafellur kvöldsinn en voru þó beðnar um að halda klæðum :klikk:

Vill þakka öllum fyrir komuna og ef það er ekki mynd af ykkur en þið voru þarna þá bara commentið þið og skítið á þetta :)

en í lokinn nokkrar myndir sem hafa í mjög langan tíma verið á leiðinni á þetta blog sófa fluttningurinn

Eins og sést strax þá passar sófin enganveginn í bílinn en stoppaði það okkur nei við keyrðum með hann svona.

Ég hélt bara lauslega í hann í framsætinu en ég vill koma á framfæri Jó gaur á silfurlitaðri primeru ertu hálfviti keyrandi í rassagtinu á bíl með hálf hangandi sófasetti út úr skotinu?? hvernig ætli sé að fá sófa sett í gengnum framrúðuna. eitthver séð final destination??

 

Kveðja Davíð Leó frá florida 8)

 

 


» 16 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 10:27:26 / davidleo

Gamla Grensás partý!!

Jæja... þá er það komið í hendurnar á henni Andreu að lífga þessa síðu aðeins upp!

Ég er með gleðifréttir!

Ég ætla að halda upp á afmælið mitt og halda gríðarlegt partý í byrjun júní! Eru allir fyrrverandi meðlimir af The Grensás team og nýju Skeifubúarnir boðnir en ef að þið viljið taka með gesti verðið þið að tala við mig.

Ég var að spá í að halda það föstudaginn 8. júní eða laugardaginn 9. júní... hvort lýst ykkur betur á?? Endilega segið ykkar skoðun á því :)

Þetta er tilvalið tækifæri til þess að endurvekja gamla Grensás andann! Við vorum nú engin lömb til að leika sér við heldur fullvaxnar rollur í þessum málefnum!!

Koma svo.. ekki vera ferhyrningur eins og Davíð Leó og missa af þessu partýi! Þetta verður án efa partý ársins!! Allir að mæta!

Kv. Andrea Björk Partýholder ;)

img207/4056/andrea9zk.jpg


» 10 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 12:19:46 / heidar

Skíturinn er allsstaðar, bara spurning um að leita...

Syndir fortíðarinnar

 Kúkur um vini og vandamenn er nokkuð sem ber að varðveita vel. Það er nefnilega aldrei að vita hvenær kúkurinn kemur að góðum notum til að halda úti súrri DP Grenz bloggsíðu. Árið 2006 átti lítil stelpa sem heitir Linda (Grísinn) einnota myndavél. Þessa vél notaði hún yfir nokkra mánaða tímabil. Þessar myndir fóru svo í framköllun seinna þetta sama ár. Kom þá ljós nokkuð ilmandi ferskur kúkur um Davíð Leó, já hann Davíð fór í fullorðinsdeildina, 35+......

 

 

Einn góðan þynnkukenndan sunnudag fóru fjórmenningarnir Heiðar, Davíð, Grís og Flatrass í fjós í Kjós. Múnderingin eru forláta plastfrakkar til að varnast kúknum...:S

 

Sjaldan launar kálfurinn ofeldið....

 

Hér stöndum við hliðina á skítapokanum. Skítapokinn er sá staður þar sem öllum skítnum úr fjósinu er dælt í. Davíð Leó sá sér leik á borði og ákvað að nota skítapokann sem trampólín.... en æ obbosí, skítapokinn gaf sig og Davíð fékk að baða sig í kúknum :lol:

 

Tveir hamingjusamir menn, mjög líklega kenndir af áfengisdrykkju í fylgd með manni sem þarf nauðsynlega að komast á allra næsta klósett...

 

Hefur djammið alltaf verið svona frábært? Ég er ekki frá því að Flóki sé edrú og það er nokkuð ljóst af svipnum á Gunna að dæma að hann er ennþá að vinna á DP þegar þetta er tekið :frown:

 

Eru menn að fara að bora í nefið eða er þetta bara skítugt pós... ;)

 


Bíddu nú við, djöfull kannast ég við þennan gaur. Hlýt að hafa séð hann einhvers staðar áður... Flatrass í bakgrunni að renna "hýru" auga í átt að Þorleifssyni...

 

Hér sjáið þið einn hamingjusaman sænskan grís í þjóðbúning þeirra Svía. Í bakgrunni er einn heldur pétur skelkaður "glappa" sem er í þann mund að verða étinn af óla ánanaust en eins og endranær þá er "happa" í góðu glensi með góðan drykk og blessunarlega laus við slíkar ógnir... ;)

 

"Hey sæta, ætlar þú að kyssa mig?"...... "HA!?, NEI!?" "Allt í lagi ég finn þá bara einhverja gamla konu sem kann gott að meta....:klikk:"

 

"Vó, halló halló!, hvenær rennur þú út sæta...?"

 

"PSSSSTTTT, á ég að segja þér svolítið..... Ég er með fetish fyrir gömlum konum sem eiga þrjú börn með þremur mönnum..... :klikk:

 

Stundum kúka menn upp á bak. Oft komast menn upp með slíkt. En oftar en ekki þá er kúkur eins og illgresi og vill oft spretta upp þegar síst skyldi....:klikk:
Kv. Heiðar og semi Flatrass


» 11 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 22:15:26 / heidar

Upprisa /GRENZ

Er bloggið dautt?


NEI!, það eina sem er dautt hér er Partýstrumpur!
Ha?.... ég DAUÐUR, djös kjaftæði, fær maður ekkert að drekka í þessu súra partýi?
Eftir rað-uppsagnir á helstu skyndibitabúllum bæjarins, nefnum engin nöfn. Þá ákvað Höfuð-Grísinn að taka McBingo undir sinn verndarvæng. Já, Póstgrís fékk vinnu í Bónus!
Já, Póstgrís fékk litakóðann og nú setur hann bara rautt skyr hjá rauðu skyri og blátt skyr hjá bláu. Ingó dulllegur! :)
Orginal Grísinn að svíkja lit...
NEI, OBBOSÍ! Hvað er hér, maður að safna kollvikum! Við vitum öll hvert þetta stefnir 8|
Úff, 23:55 og menn orðnir æstir í skipstjórann...
Já, sjáið hvert þetta leiddi. Flatrass farinn að sýna dulda ást sína á erkióvini sínum, Kleinari :)
Hver er tanaður hér? Ekki Gústi! Þessi mynd er tekin WAY DEN, þ.e.a.s. löngu áður en Gústi skeindi sér...:klikk:
Hvern er Flatrass að stæla núna...? Ekki viss ?
Jæja, ég skal gefa þér hint......
...jú, hinn fertuga þriggja barna föður, Hlöðver Bernharð Jökulsson :lol:
Ó já, þetta er BJ ! 8)
Þessi maður fann engin föt sem pössuðu þannig að hann ákvað að yfirgefa pizzabranzann á DP og flytja aftur í heimahagana. Já, hann Gunnar keypti einbýlishús á Rifi og skellti sér á sjó á Ribbanum :o
Já gott fólk, við keyptum WC pappír.
Kv. Heiðar, Davíð, Flatrass og Axel :)

» 12 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 09:24:43 / heidar

Áramótin hjá GRENZ

.

Nýtt ár,

ferskt blogg...

 

Jæja gott fólk, þorrinn á næsta leiti og því vel við hæfi að færa ykkur eitt vel súrsað blogg.
Já, við erum að tala um laugardaginn 30. des og sunnudaginn 31. des (a.k.a. gamlárskvöld)...

 

Glatað að þurfa að díla við þetta súra pakk sem ruddist óboðið inn í grenið í vanginum þar sem ég lá nánast nakinn í húsbóndastólnum :o

 

Já þarna er maður nýkominn úr sturtu og kominn vel ofan í pelann í leit að einhverri ögn af löngun til þess þess að fara í bæinn, en leitin gengur illa. Bróðir Davíð er greinilega kominn þangað í huganum ;)

 

Já, hann Davíð hefur alltaf verið mikil barnagæla :lol:

 

Bí bí og blaka, álftirnar kvaka, ef þú munt ei sofa rótt þá mun ég vaka... "Góða nótt ástin mín"...;)

 

FrissaFriss! ;) Við skulum láta þessa mynd vera víti til varnaðar. Tópas skot hafa aldrei gagnast neinum. Mögulegar aukaverkanir: ranghugmyndir um eigin íþróttamannsferil, uppköst og síðast en ekki síst; augabrúnamissir! :klikk:

 

Úff, já allar græjur til taks. Mér þótti vægast sagt erfitt að horfa upp á þetta; stelpur geta verið svo EVIL :o

 

Það hlaut að koma að því áð hálfbrýni maðurinn færi að ranka við sér; gamanið á enda...

 

OK, let's go. Ég er kominn í "partýgallann"

 

Komnir á Glaumbar; jæja strákar gerum gott úr þessu og dettum í það. "Þetta er allt í lagi; ég er á Ribbanum" . segir Gunnar :lol:

 

Nýtt par á GRENZ, þannig endaði þetta frábæra kvöld! NOTA BENE; skítaglottið á Græna Hlunknum ;)

 

 

Jæja, þá er komið að gamlárskvöldi. Krumpaðasta teiti ársins, aka súrasta partý DP GRENZ ever ... :(

 

Partýhaldarinn hann Flóki sáttur við líf og drykk :o

 

Litla stelpan hún Bryndís mætti; hún opnar kjaftinn fyrir hvaða DP tappa sem er ... (nei djók, sorry brundgrís,,,, ;)

 

Jæja litla stelpa, er það þarna sem þú geymir retturnar  :klikk: AHHHHHHHH, verð að fá sígó :lol: 

 

Fuck yeah (djöfull er ég svalur með rettu). Já; "leyfið börnunum að koma til mín, ég skal kveikja í;)"

 

Allt að gerast og brundgrís að skipuleggja brottför úr krumputeitinni...

 

Svo virðist sem Davíð hafi dottið út í nokkrar sekúndur á meðan þessi mynd var tekin. Strumpur var ekki lengi að uppfylla langþráðan draum...8|

 

Já, alveg rétt. Hárlausu mennirnir Light og Gunni heiðruðu okkur með nærveru sinni eitt augnablik, en eins og litlu stelpurnar þá fóru þeir á menntaskólaballið með Sálinni á Broadway...

 

Jú, Hóritos Flatrass (til hægri (á hlið)) ;) mætti líka. Hann fór líka á Broadway :S

 

"Við hvern ertu eiginlega að tala?" :o

 

"Æi úpps, ég hellti niður. Come on, ég er bara lítil stelpa, ætlar enginn að þurrka þetta upp fyrir mig?" ;)

 

"HALLÓ HALLÓ!, hvaða hálfviti er að reyna að detta í það með EGILS SULL!?!"

 

Jæja, komnir í bæinn að reyna að redda þessu kvöldi. Rekumst á FrissaFriss sem...

 

... bauð okkur upp á eitt stykki súrt partý í einhverju húsi á Laugaveginum :S

 

PONSI og CURGLES. Bar 11 mun aldrei verða samur aftur! CURGLES (til hægri) er fluttur til DK í óákveðinn tíma. Ég samhryggist PONSI minn :(

 

Þorleifsson mætti í 101 í Hawaii fíling með blómsveig um hálsinn. En þarna er farið að líða á morgun og súrt kvöld brátt á enda...

 

 

Já krumpuðu vinir, svona voru áramótin hjá GRENZ.

Bara nokkuð góð svona á eftir á að hyggja...

Já, svo er íhrun í vanginum á laugardaginn fyrir þá sem hafa áhuga ;)

 

Kv. Heiðar


» 18 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 08:51:04 / heidar

Krumpaðasta teiti ársins!

.

Krumpaðir tappar athugið !

Þann 31. desember næstkomandi er eins og einhverjir vita síðasti dagur ársins 2006.

Aldrei hefur ærnari ástæða verið til að gera sér glaðan dag en akkúrat á þeim degi til að fagna nýju ári og betri félagsskapur en krumpuðu tapparnir á Grenz er vandfundinn.

Því hlýt ég að spyrja...

Hvar verður þú ágæti tappi?

Djammið hjá Grenz hefur sjaldan klikkað og á sunnudaginn verður engin breyting þar á

 

Aldrei að vita nema þessir tveir taki lagið :lol:

 

Engin þörf fyrir limma í bæinn í þetta skiptið þar sem gleðin mun verða haldin á Flókastöðum (Tala við mig eða Flóka fyrir nánari leiðbeiningar)

 

Fólkið á Grenz hefur verið þekkt fyrir að stinga saman nefjum þegar áfengi er haft við hönd. Og þá er það bara stóra spurningin: Hver fer heim með hverjum á nýársmorgun :o

 

Semsagt, krumpaðasta teiti ársins heima hjá Flóka á gamlárskvöld.

Mæting eftir miðnætti !

Þú þar, annars ertu krumpaður tappi!

 

Sjáumst,

kv. Heiðar


» 16 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 18:31:31 / heidar

Stick hornið

.

Stick tímabilsins

 

Á síðustu misserum hefur það þótt móðins hjá mér og Flatrass að níða þarfasta þjón McBingó.

Það er ökutæki af gerðinni Volkswagen Vento. Þessi sportbíll rann af færibandinu síðla árs 1995 og flokkast þ.a.l. sem '96 árgerð. Þetta er 1800 mótorinn og á að skila 89 blússandi hestöflum. Þegar þetta er skrifað er hann nýbúinn að ná þeim merka áfanga að vera ekinn 109.000 km.

 

OX-848 í allri sinni dýrð og McBingó kominn eins og svo oft áður upp á þak

 

Já, ef það fór eitthvað fram hjá ykkur þá er þetta STICK. Undirritaður hefur ekið samskonar NON-STICK Vento og sú lífsreynsla var vægast sagt svæfandi. Af hverju? Jú af því að fjöðrunin í Vento er álíka mjúk og dýna frá Svefn og heilsa enda er Vento-inn í daglegu tali einnig kallaður dýnan. Hver vill ekki keyra beinskipta dýnu?

 

McBingó smurapi með meiru, ekki bara með djúpsteikingarolíu á höndunum heldur einnig mótorolíu sem lúbar öll URRRRRRANDI 89 hestöflin. Frábær nýting á 1800 vélinni........... NOT!

 

Ég veit ekki hvort er meira PLAIN. Krumpaði tappinn til vinstri eða þessi ljósgrái STICK..... :S

 

 

 Ekki trúa öllu sem þið heyrið. Vento er straight, og það er eigandinn líka ;)

 

 

Svo ég vitni nú í Dabba: "Voff voff wrooff wroooff" eða eintóm fegurð og smá pós ;)

 

Úti að skíta eða JACKA ?

 

String-Emil hvað ( http://www.string-emil.de/ ;) :lol:

 

Síðasta myndin af stoltum Stick eiganda

 

Við munum reyna að hafa þennan lið á mánaðarfresti. Allir stick eigendur eru hvattir til að hafa samband ef áhugi er fyrir að taka einn nettan sunnudag í smá photosession.

 

Wroooofff,

kv. Heiðar, Flatrass og eigandinn sjálfur, McBingó

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 00:09:43 / davidleo

SVIGNASKARÐ 2006

Bústaðarferð svignaskarð 17/11--19/11

Við Grensás teamið fórum á dögunum í bústaðarferð eins og í fyrra þá leigðum við hjá eflingu. En fengum stóran bústað þetta ár sem heppnaðist bara ágætlega. (kúturinn sló í gegn) þökkum egils fyrir  að redda okkur dælu :) sú seinnasta á landinnu

Kvöldið að byrja og sumir komnir í gírinn fyrr en aðrir :) hef enga hugmynd hvort kvöldið þetta er :)

Kári rosalega sætur og fyrir þá sem ekki voru þarna þá voru engar nærbuxur þarna undir kári dónó strákur :)

Minz að detta og allir að hlæja að mér.....

Sorry kári im the devil vorum við ekki að hlæja að naggrísa myndinna hans heiðars kannski að þið ættu að fá ykkur búr saman :)

Kózý í sófanum :)

 



Frissi sóða strákur fann bara ekki góða mynd af þér í flýti en allt í lagi þú svafst með 2 stelpum :)

Þetta er stemminginn hjá okkur go ingó sæti mc strákur

SINGSTAR yeeee hvar var ég ekki man ég eftir singstar (kannski hjá kútnum :) )

Arrrgg Græni hlunkurinn kominn vel í glasið..

Það fór mjög lítið fyrir því en gústi og in´gó sváfu saman í sófanum NAKTIR :/

ERU MENNIRNIR HAMINGJUSAMIR EÐA HVAÐ!!!!!

FLOTTIR RASSAR með sexý dælu :)

Það voru fleiri sem urðu ástfangnir af dæluni....

Okey ég veit myndinn snýr öfugt þetta blog system er drasl "#$% en ljúfur koss þakka fyrir mig :)

Kári hvaðan kom þetta gameface Fock já...

Þessir tveir voru getnir með sömu móður (frá amsterdam)

Hey Davíð Smell my finger,   AAAA WTF is it,   MY ASS

Þarna var ég pott þétt kominn með félagan minn hann morgan í glass með skýluna á hausnum hálf nakin :/

 

HAHAHAHA sjáið hvað er þarna hjá heiðari koddinn hans Dabba :) flottur heiðar...

Þetta er svo ekkert í röð hjá mér að það er algjört rugl en fun fun hjá okkur...

´

Óli sekkur sem ekkert fór fyrir í ferðinni og verkefnið mikla að koma fifa eða singstar í gang mann ekki hvort :)

JÆJA nenni ekki meir hvar eru flókason og kári sem by the way er ekki búin að blogga enþá em ekki voga ykkur að blogga yfir þetta....

kveðja Davíð Leó höfundur ásamt heiðari og flatrass sem gerðu lítið meira en að leiðrétta stafsetninga villur mínar #"%/




» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Heimsóknir
Í dag:  8  Alls: 53954
Dagsetning
9. febrúar 2012